Farfuglar

SA-land:
Við Holtahóla á Mýrum voru um 400 heiðagæsir og 2 helsingjar. Við Hólm og Hellisholt á mýrum um 250 heiðagæsir. Við Flatey á Mýrum um 1750 heiðagæsir og 17 helsingjar. Á Heinabergsaurum í Suðursveit um 320 heiðagæsir og 660 á túnum á Steinasandi í Suðursveit vestan Steinavatna. Utan við Jökulsárlón voru a.m.k. 2000 ritur. Átta grafendur á tjörnum neðan við Stóra-Ból á Mýrum og 16 helsingjar á túni ofan þjóvegar við Stapa í Nesjum, ekki komið mikið af gæsum en þetta er að byrja og farflugið kemst vonandi á fult eftir helgina með hagstæðari vindáttum.

bjugnefja@bbprentun.com