Farfuglar/Migration

Skógarþrestir hafa sést á nokkrum stöðum, ekki mikil fjölgun enn. Á Flóanum við Höfn voru 143 brandendur og 20 stelkar. Grágæsir hafa sést á nokkrum stöðum á sunnanverðu landinu og álftum og tjöldum fjölgar jafnt og þétt þessa dagana. Í gær sást jaðrakan við Eyrarbakka og í fyrradag margæs, hópur brandanda og tugir tjalda. bjugnefja@smart.is… Continue reading Farfuglar/Migration

Flækingar dagsins / Rarities of the day

SA-land: Höfn, bærinn: Gráspör (kk) og hettusöngvari (kvk), Flóinn: 2 fjöruspóar. Krossbær í Nesjum: Gráhegri. Landið: Þórkötlustaðabót við Grindavík: Krákönd. Grindavík, inan við Gerðistanga: Korpönd. Hafnarfjörður, Hvaleyrarlón: Hringmáfur (2. vetur). Reykjavík, Kirkjuhólmatjörn: Gráhegri. bjugnefja@smart.is

Farfuglar/Migration

Fyrstu skógarþrestirnir komnir, í Garðinn við Hagatún 8 á Höfn komu 8 fugla snemma í morgun, 2 voru í Einarslundi (annar syngjandi) og 10 fugla komu við í Þorgeirslundi, fyrsti sást einnig á Djúpavogi í morgun. Stór grágæsahópur yfir Djúpavogi. Skúfönd og stelkur á og við Laugarvatn. bjugnefja@smart.is

Farfuglar/Migration

Tjöldum fjölgar á Suðurlandi, um 50 fuglar sáust við Holtsós og um 200 komnir í fjörurnar við Stokkseyri og Eyrabakka, fysti tjaldurinn kominn við Selfoss. Einnig streyma inn álftir á Holtsósi voru um eða yfir 100 fuglar. Tveir um eða yfir 1o fugla hópar við Höfðabrekku í Mýrdal. Um 1oo álftir við Sléttaleiti í Suðursveit… Continue reading Farfuglar/Migration

Flækingar dagsins / Rarities of the day

Landið: Húsavík: Æðarkóngur (kvk). Keflavík: Kolönd (kk). Blönduós: 3 æðarkóngar. Fáskrúðsfjörður: Silkitoppa og gráþröstur. Hafnarfjörður, bærinn: Glóbrystingur, Þöll: Glóbrystingur. Selfoss: Fjallafinka. bjugnefja@smart.is

Flækingar dagsins / Rarities of the day

SA-land: Höfn, bærinn: 2 hettusöngvarar (kvk og kk) og gráspör (kk). Sel á Mýrum: Gráhegri. Landið: Sandgerði: Strandtittlingur og 9 fjöruspóar. Húsavík: Æðarkóngur (kvk). Reyðarfjörður: 2 gráhegrar. bjugnefja@smart.is

Farfuglar/Migration

Í Lóni hefur álftum fjölgað hratt síðust daga og voru yfir 3000 í dag einnig voru 40 rauðahöfðaendur. Á Flóanum við Höfn voru 14 brandendur. bjugnefja@smart.is

Flækingar dagsins / Rarities of the day

SA-land: Höfn, bærinn: Silkitoppa, hettusöngvari (kvk) og gráspör (kk). Svínhólar í Lóni: 13 hvinendur. Landið: Víkur á Reykjanesi: Korpönd. Húsavík: Æðarkóngur (kvk). bjugnefja@smart.is

Farfuglar/Migration

Fyrsti skúmurinn sást á Breiðamerkursandi. Á Flóanum við Höfn hefur tjöldum fjölgað töluvert, þar voru líka 7 stelkar og 17 brandendur. Utan við Ósland á Höfn sáust fyrstu 2 sílamáfarnir en töluvert er komið af þeim á Suðvesturhornið. Fáskrúðsfjörður, fyrsta ritan. bjugnefja@smart.is

Farfuglar/Migration

Fyrsti skúmurinn sást utan við Jökulsárlón. Álftir sáust við Hestgerði í Suðursveit, Borgarlandi í Suðursveit. Fyrstu urtendurnar og tjaldarnir sáust á Fáskrúðsfirði. bjugnefja@smart.is

Flækingar dagsins / Rarities of the day

SA-land: Höfn, bærinn: Gráspör (kk), silkitoppa og hettusöngvari (kvk). Krossbær í Nesjum: 2 gráhegrar. Brunnhóll á Mýrum: Gráhegri.  Landið: Keflavík: Kolönd (kk) og 3 tyrkjadúfur.  bjugnefja@smart.is

Lóan er komin

Fyrsta heiðlóan er komin til landsins, hún sást á Flóanum á Höfn, en í gær heyrðist í lóu utan við Ósland á Höfn. Engar heiðlóur hafa verið á Höfn í vetur. bjugnefja@smart.is

Farfuglar/Migration

Frá Höfn og í Berufjörð er komið töluvert margir tjaldar, 5-600 fuglar sáust. Yfir 2000 álftir komnar á Lónið, a.m.k. 2 grágæsir og um 30 rauðahöfðaendur. 7 grágæsir voru við Haga í Nesjum og 27 álftir við Krossbæ í Nesjum. bjugnefja@smart.is

Flækingar dagsins / Rarities of the day

SA-land: Höfn, bærinn: Silkitoppa, hettusöngvari (kvk) og gráþröstur. Svínhólar í Lóni: 23 hvinendur. Krossbær í Nesjum: Gráhegri. Landið: Kross í Berufirði: Hrókönd. Reykjavíkurhöfn: Æðarkóngur. Húsavíkurhöfn: Æðarkóngur (kvk). Fáskrúðsfjörður: Silkitoppa. Keflavík: Kolönd (kk). bjugnejfa@smart.is

Flækingar dagsins / Rarities of the day

SA-land: Höfn, bærinn: Gráspör (kk), silkitoppa, hettusöngvari (kvk) og gráþröstur, Flóinn: Lappajaðrakan og 23 fjöruspóar. Krossbær í Nesjum: 2 gráhegrar. Holt í Nesjum: Keldusvín. Landið: Stöðvarfjörður: Grákráka. Fáskrúðsfjörður: Silkitoppa. Sandgerði: blendingur æðarkóngurXæður (kk). Núpar í Ölfusi: 2 gráhegrar.  bjugnejfa@smart.is